Lítil nýliðun meðal augnlækna áhyggjuefni Jóhanna Margrét Gísladóttir. skrifar 3. september 2011 18:26
Hér á landi starfa nú þrjátíu augnlæknar og er meðalaldur þeirra kominn langt yfir fimmtugt. Lítil nýliðun hefur verið undanfarin ár en til dæmis hefur enginn nýr sérfræðingur verið ráðinn til starfa á augndeild Landspítalans síðan árið 2006. ,,Það hafa verið deildarlæknar hjá okkur sem eru núna að fara út í sérnám en það tekur 5-10 ár að þjálfa upp lækna til að sinna sérhæfðum skurðaðgerðum og flóknari vandamálum, við sendum ekki fólk út í eitt tvö ár og það kemur aftur heim og getur gert þessa hluti, það tekur langan tíma" segir María Soffía Gottfreðsdóttir formaður Augnlæknafélags Íslands og sérfræðingur á Landspítalanum. Hún segir auglækningar mjög sérhæft fag og það séu fáir sem hafa þekkingu í hverri sérgrein. ,,þannig að hver og einn sérfræðingur skiptir gríðarlega miklu máli og það er mikil blóðtaka fyrir okkur ef við missum í rauninni bara hvern og einn." Nú þegar hafa nokkrir augnlæknar flutt erlendis og aðrir starfa einungis tímabundið hér á landi. Ástandið er því mjög brothætt að sögn Maríu og hætta á að mikil framþróun í faginu undanfarin ár muni hverfa og þjónusta sem talin er sjálfsögð í dag hverfa. ,,Ef að við missum þetta fólk sem er að sinna sérhæfðari vandamálum og er að gera aðgerðir í dag að þá í raun og veru ættum við ekki annarra kosta völ en að senda það fólk út með tilheyrandi kostnaði og óþægindum fyrir sjúklingana" segir María Soffía.
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Fleiri fréttir Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Sjá meira