Innlent

Segir forseta brigsla ráðamenn um landráð og líkir honum við Lady Ga Ga

Jón Baldvin Hannibalsson.
Jón Baldvin Hannibalsson.
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, harðlega í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í dag. Þar segir Jón Baldvin forsetann brigsla ríkisstjórnina um landráð, „með því að semja um Icesave – beygja sig fyrir fáránlegum kröfum og ofbeldi Breta og Hollendinga, eins og hann [Ólafur Ragnar  innskt. blm.]kallar það – hafi ríkisstjórnin brugðist þjóðarhagsmunum,“ skrifar Jón Baldvin.

Hann bætir við að  Ísland sé eina ríkið í heiminum, „svo mér sé kunnugt um, þar sem forseti ríkisins getur brigslað sitjandi ríkisstjórn um landráð, án þess að það gerist nokkuð. Engin viðbrögð,“ skrifar Jón Baldvin og spyr síðan:  „Hvurnig er það – tekur enginn mark á forsetanum?“

Jón Baldvin segir síðan að ríkisstjórn Íslands geti ekki látið meint svikabrigsl forsetans eins og vind um eyru þjóta.

„Ef forsetinn sér ekki sjálfur sóma sinn í að gæta tungu sinnar, geta ábyrgir stjórnmálaleiðtogar – eins og ráðherrar utanríkis- og ríkisfjármála – ekki lengur leyft sér að láta hjá líða að svara fullum hálsi – þegar forsetinn fer yfir strikið. Þeim er skylt að taka af tvímæli um, hverjir beri ábyrgð á íslenskum þjóðarhagsmunum,“ skrifar Jón.

Jón Baldvin lætur svo fylgja með spaugilegt augnablik sem hann upplifði í Eistlandi á dögunum. Hann lýsir því svona:

„Áður en forsetinn flutti ræðuna hafði eistneski utanríkisráðherrann á orði, að dætur hans ungar væru í sjöunda himni, af því að þeim hefði hlotnast sú náð að taka í höndina á átrúnaðargoði sínu – poppstjörnu, sem væri þekkt sem hin eistneska „Lady Ga Ga“. Nærstaddur landi vor, sem heyrði þetta, missti þá út úr sér: Heldurðu að þær verði nokkuð minna upp með sér af því að fá að taka í höndina á okkar íslenska „President Ga Ga“?“

Á þeim nótum endar Jón Baldvin grein sína þegar hann spyr hvort það þurfi að útskýra málið fyrir viðsemjendum landsins með sögunni af „Lady Ga Ga“?


Tengdar fréttir

Lady Ga Ga?

Ólafur Ragnar Grímsson stærir sig nú af því, að hann hafi alltaf vitað, að þrotabú LB ætti fyrir forgangskröfum (Icesave). Hann hafi m.ö.o. vitað, að skuldir óreiðumanna (eigenda LB) myndu aldrei lenda á almenningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×