Segir aðildarumsóknina sundra þjóðinni 31. ágúst 2011 14:45 Mynd/GVA
Stjórn Samtaka afurðastöðva í mjólk og kjöti, SMK, vill að Alþingi beri að leggja aðildarumsókn að Evrópusambandinu til hliðar. Samtökin segja þetta nauðsynlegt nú þar sem mikil óvissa ríki um myntsamstarfið, uppbyggingu og innra skipulag ESB. SMK starfa innan Samtaka iðnaðarins og var ályktun þessa efnis samþykkt í dag. Formaður þeirra er Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins. „Samtökin telja að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins horft til framtíðar,“ segir í ályktuninni. „Við núverandi aðstæður innan Evrópusambandsins, þar sem grundvallarmál, sem snerta framtíð myntbandalagsins og uppbyggingu og skipulag Evrópusambandsins sjálfs eru til umræðu meðal aðildarþjóða og niðurstöðu ekki að vænta í fyrirsjáanlegri framtíð er rétt af Alþingi að leggja aðildarumsóknina til hliðar.“ Þá segir að ljóst sé að samningaviðræður snúist um afsal á yfirstjórn fiskveiða og fiskimiða og samningsrétti við aðrar þjóðir um skiptingu mikilvægra deilistofna svo og um grundvallarbreytingar í rekstri landbúnaðar á Íslandi, „sem reynslan sýnir að geta beinlínis stofnað veigamiklum þáttum hans í voða.“ Að lokum er sagt að aðildarviðræðunum fylgi mikill kostnaður og aðildinni enn meiri kostnaður ef að yrði. „Ísland þarf nú fyrst og fremst á að halda samstöðu og samtakamætti til að byggja upp og þróa grundvallaratvinnuvegi þjóðarinnar. Aðildarumsóknin sundrar þjóðinni og gerir henni ókleift að ná saman um aðkallandi verkefni.“ segir að lokum.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Sjá meira