Segja frekari niðurskurð bitna á þjónustu Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. ágúst 2011 09:36 Hjúkrunarráð Landspítalans segir að frekari niðurskurður muni koma niður á þjónustu Landspítalans.
Hjúkrunarráð Landspítalans varar eindregið við frekari niðurskurði á fjárveitingum til Landspítalans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Hjúkrunarráðið sendi frá sér í morgun. Halli á fjárlögum var sem kunnugt er um helmingi meiri en lagt var upp með á síðasta ári og þykir líklegt að bregðast verði við því með auknum álögum og meiri niðurskurði á næsta ári. Hjúkrunarráð Landspítalans, sem skipað er öllum hjúkrunarfræðingum á stofnuninni, segir að undanfarin ár hafi starfsfólk spítalans tekist á við mikla endurskipulagningu á þjónustu og lagt metnað sinn í að niðurskurður á fjárveitingum komi sem minnst niður á öryggi sjúklinga. Hagræðingaraðgerðir hafi haft mikil áhrif á kjör og starfsumhverfi allra starfsmanna. Fækkun starfsfólks um 600 á stuttum tíma hafi aukið vinnuálag á þá sem eftir eru. Ljóst sé, að ekki sé hægt að fækka starfsfólki meira án beinnar þjónustuskerðingar við sjúklinga. Þá bendir Hjúkrunarráðið á að Landspítalinn sé mikilvæg menntastofnun sem sinni rúmlega 1100 nemendum á ári. Í þrengingum undanfarinna ára hefur starfsfólk sinnt kennslustörfum af kostgæfni, þrátt fyrir verulega aukið vinnuálag. Hjúkrunarráðið hvetur velferðarráðherra til að leita allra leiða til að komast hjá meiri niðurskurði á Landspítala, stærsta og mikilvægasta sjúkrahúsi landsins. Minni fjárveiting muni fela í sér beina skerðingu á þjónustu við sjúklinga og ógna öryggi þeirra.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira