Vill skylda veitingahús til að gefa upp hitaeiningamagn Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. ágúst 2011 13:15 Sturla segir gríðarlega mikilvægt að draga úr magni hitaeininga í matvælum.
Það væri æskilegt ef stjórnvöld skylduðu eigendur veitingahúsa til þess að tilgreina á matseðli veitingahúsanna hversu margar hitaeiningar eru í réttunum þeirra. Þetta segir Sturla B. Johnsen, heilsugæsluæknir hjá Heilsuvernd Reykjavíkur. „Mér skilst að búið sé að setja þetta sumstaðar í lög í Bandaríkjunum, til dæmis New York,“ segir Sturla. Þetta hafi haft þau áhrif að veitingahúsaeigendur séu orðnir mun meðvitaðri um það hvaða hráefni þeir setja í þá rétti sem þeir bjóða. „Þetta hefur haft þau áhrif að réttir sem voru kannski 1200 hitaeiningar eru nú komnir niður í 700 hitaeiningar,“ segir Sturla. „Þetta er gríðarlega þýðingarmikið atriði fyrir lýðheilsu á Íslandi,“ segir Sturla. Hann bendir á að með þessu móti mætti spyrna fótum við offituvæðingu í samfélaginu og takast á við ýmsa heilsutengda sjúkdóma. Þar nefnir hann sem dæmi hjarta- og kransæðasjúkdóma og sykursýki. „Auk þess sem það myndi náttúrlega líka hafa áhrif á andlega heilsu fólks,“ segir Sturla. Hann segist þekkja það af eigin raun og af samskiptum við skjólstæðinga sína að leiðin til þess að draga úr offitu sé að minnka hitaeiningamagn. Það skipti jafnvel meiru magni en hreyfing. Sturla segir að þetta þyrfti ekki að vera íþyngjandi fyrir eigendur veitingahúsa. Hann bendir á að þeir veitingastaðir sem nú þegar taki fram hve hitaeiningaríkir réttirnir þeirra séu njóti vinsælda fyrir að huga að heilsu.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira