Innlent

Lúna þefaði uppi kannabis í Vestmannaeyjum

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók í gær fjóra einstaklinga eftir að nokkuð magn af fíkniefnum fundust í herbergi á gistiheimili þar sem þau gistu.

Um var að ræða um 50 grömm af maríjúna.

Fíkniefnahundurinn Lúna bætti svo um betur og fann lítilræði af fíknefnum í bifreið þessara aðila. Við skýrslutöku neituðu þau að eiga efnin og voru þau því færð í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Öll hafa þau komið að málum hjá lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×