Jónína óttaðist um líf Gunnars í Krossinum 24. júlí 2011 20:00
Lögreglan hefur hætt rannsókn á meintum kynferðisbrotum Gunnars Þorsteinssonar, fyrrverandi forstöðumanns Krossins. Gunnar segist málalokunum fegin, hann geti nú hafið nýtt líf. Eiginkona Gunnars óttaðist um líf hans á tímabili. Í bréfi frá lögreglunni í Reykjavík, sem Gunnari barst um helgina, er sagt að rannsókn málsins hafi verið hætt. Vísað er í lagagrein sem kveður á um að hætta skuli rannsókn hafi kæra ekki verið á rökum reist eða brot hafi verið smávægilegt. „Þetta merkir ný byrjun, nýtt upphaf, nýtt líf. Ég fyllist þakklæti guði mínum, vinum og fjölskyldu að hafa staðið með mér allan þennan tíma. En þetta þýðir nýtt upphaf," segir Gunnar sem hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu í málinu. „Ég er ekki fullkominn maður en þessar ásakanir á ég ekki og hef vísað þeim frá alla tíð og nú er það lögformlega staðfest." Mál Gunnars hlaut gríðarlega fjölmiðlaumfjöllun á síðasta ári. Hann steig til hliðar sem forstöðumaður Krossins. Jónína Benediktsdóttir, eiginkona hans, segir ásakanirnar hafa hvílt þungt á fjölskyldunni. „Ég er bara þakklát að maðurinn minn sé á lífi, það var ekki sjálfgefið á tímabili því þetta hefur haft gríðarleg áhrif á hann." Gunnar segir ábyrgð fólks og fjölmiðla mikila í þessu máli. Fjölmiðlafárið kringum mál hans sé umhugsunarvert. „Það er hægt að nálgast hvern sem er með þessum hætti ef þetta á að vera aðferðarfræðin í íslensku samfélagi. Það má ekki verða. Að menn gangi fram með þessum hætti. Að hver sem er, geti farið inn á hvaða fjölmiðil sem er og sagt hvað sem er um náungann. Það má ekki vera þannig." Viðtalið við Gunnar Þorsteinsson og Jónínu Benediktsdóttir má sjá í heild sinni hér á Vísi.
Mest lesið Nýbakaðar mæður í felum því þær viti hvernig kerfið virkar Innlent Rannsökuðu ekki nauðgun og báðu sakborning afsökunar Innlent Rannsökuðu meint kynferðisbrot á leikskóla Innlent Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa Erlent LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Erlent Leiðindaveður um land allt, gular viðvaranir og óvissustig Veður Minnir á að flest kynferðisbrotin eigi sér stað á heimilinu Innlent Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Erlent Eigandi OnlyFans látinn Erlent Íbúakosning væri einföld sáttaleið í Skagafirði Innlent Fleiri fréttir Saka stjórnarþingmenn um að vanvirða bændur Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Öllu innanlandsflugi aflýst Einn í gæsluvarðhaldi eftir stunguárás í miðborginni Þrjár nýjar rennibrautir á Sauðárkróki í sumar Vegalokanir, snjóflóðahætta og óvissustig Bændurnir í Gunnbjarnarholti hlutu landbúnaðarverðlaunin Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Hafi ekki áhrif á leigumarkaðinn til skemmri tíma Minnir á að flest kynferðisbrotin eigi sér stað á heimilinu Vonskuveður enn og aftur um mestallt land Rannsökuðu meint kynferðisbrot á leikskóla Bein útsending: Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands Aðalmeðferð hafin í máli Helga Bjarts Átta mánaða skilorð fyrir ofbeldi í nánu sambandi og eignaspjöll Vísað úr landi og bannað að snúa aftur vegna þjófnaðar Rannsökuðu ekki nauðgun og báðu sakborning afsökunar Íbúakosning væri einföld sáttaleið í Skagafirði Nýbakaðar mæður í felum því þær viti hvernig kerfið virkar Hófu frumkvæðisathugun í kjölfar umfjöllunar Kveiks Fækkun aðgerða áfall fyrir marga endósjúklinga Tekist á um kjarasamningana Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Hundur fékk tafarlausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman Hnífstunguárás í miðbænum, endómetríósa og hótanir Trumps Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Nýsköpun, kjarasamningar og afnám áminningarskyldu Fáskrúðsfjarðargöngin opin á ný Sjá meira