Innlent

Flugi Iceland Express seinkaði um sólarhring

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Matthías Páll Imsland segir að vélin sé alveg að fara í loftið.
Matthías Páll Imsland segir að vélin sé alveg að fara í loftið.
Flugvél á vegum Iceland Express, sem átti að fljúga frá Frakklandi til Keflavíkur laust fyrir klukkan þrjú í gær, bilaði og hefur enn ekki tekist að koma vélinni á loft. Farþegar sem áttu pantað flug með vélinni hafa því setið fastir í París frá því í gær.

Matthías Páll Imsland, forstjóri Iceland Express, segir að nú sé búið að finna lausn á málinu. Leigð hafi verið vél frá Air Finland. Hún sé í þann mund að fara í loftið frá Frakklandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×