Innlent

Þykir vænt um býflugurnar sínar

Býflugnarækt er vaxandi áhugamál hér á landi og hefur fjöldi býflugnabænda tvöfaldast á þessu ári. Nýliði í hópnum segir þetta vera eins og að eiga mörg þúsund gæludýr og henni þykr vænt um hverja einustu flugu.

Fjöldi býflugnaræktenda hér á landi hefur tvöfaldast milli ára. Býflugurnar eru fluttar inn í pökkum með 15 þúsund býflugnaþernum og einni drottningu. Býflugurnar safna síðan frjókornum til að drottningin geti verið dugleg að verpa og fjölga sér til að haldið hita á drottningunni á veturna.

Tómas Óskar Guðjónsson, býflugnabóndi og forstöðumaður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, hefur stundað býflugnarækt í 11 ár og segir þetta heillandi áhugamál. „Síðan er bara eitthvað við þetta. Þegar maður lærir einn hlut þá vill maður vita þann næsta og þetta er skemmtilegur félagsskapur." Hann segir gott að heyra róandi stuðið.

Þá hefur Tómas smitað samstarfskonu sína í húsdýragarðinum af býflugnaáhuganum en hún hóf býflugnarækt í sumar. „Mér finnst þetta rosalega gaman," segir Sigrún Thorlacius, býflugnabóndi. Hún segir að það hafi komið á óvart hversu vænt henni þykir um flugurnar. „Mér þykir vænt um býflugurnar mínar."

Langtímamarkmið í býflugnarækt á Íslandi er að gera landið að sjálfbærum framleiðanda býflugna og að markaðurinn skili hagnaði.

Býflugnaræktendur kalla sig oft suðara og þeim fjölgar stöðugt, en nú eru yfir 40 býflugnaræktendur hér á landi og áhuginn mjög mikill á þessum suðandi áhugamáli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×