Leggst gegn því að risahöfn á Langanesi fari á skipulag 1. júní 2011 18:45
Skipulagsstofnun leggst gegn því að Langanesbyggð fái að setja risahöfn og alþjóðaflugvöll inn á aðalskipulag þar sem hún telur áformin ekki raunhæf. Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti skipulagið í marsmánuði en samkvæmt því er gert ráð fyrir að íbúum fjölgi úr 500 upp í 5000 í tengslum við stórfellda uppbyggingu. Gert er ráð fyrir risahöfn í Gunnólfsvík og Finnafirði, sem yrði sú langstærsta á Íslandi, ásamt lóðum undir olíu- og gasvinnslustöðvar, en höfnin er hugsuð bæði til að þjóna olíuiðnaði og sem umskipunarhöfn fyrir siglingar um norðurskautið. Jafnframt er gert ráð fyrir að flugvöllurinn á Þórshöfn verði stækkaður verulega til að þjóna alþjóðaflugi. Nokkrir bændur og landeigendur gerðu athugasemdir við skipulagið, kvörtuðu einkum undan skorti á samráði, og bentu á að gildistaka skipulagsins myndi þrengja möguleika þeirra til framkvæmda á eigin jörðum. Undir þetta tekur Skipulagsstofnun sem leggst gegn því að umhverfisráðherra staðfesti skipulagið með þeim rökum að ekki sé, að sinni, unnt að telja áform um risahöfn og alþjóðaflugvöll raunhæf og ekki sé rétt að takmarka mögulegar framkvæmdir bænda fyrr en raunhæfari forsendur liggi fyrir.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Sjá meira