Hylmingamanni sleppt - fimm mánaða gæsluvarðhald of langt 4. júní 2011 10:49 Fangaklefi. Myndin er úr safni.
Hæstiréttur felldi gæsluvarðahaldsúrskurð yfir karlmanni á þrítugsaldri úr gildi í gær. Maðurinn var dæmdur í vikunni í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi Reykjaness fyrir þrjátíu hylmingarbrot vegna 25 innbrota. Brotin áttu sér stað á síðastliðnum tveimur árum en meðal annars var stolið úri sem kostaði hálfa milljón króna. Þýfið fannst á heimili mannsins. Maðurinn, sem er af erlendu bergi brotinn, hélt úti nákvæmu bókhaldi yfir hlutina sem var stolið og verð þeirra. Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að brotin voru gríðarlega umfangsmikil og vel skipulögð. Maðurinn, sem var handtekinn í febrúar síðastliðnum, hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald þá þegar. Að mati lögreglu voru yfirgnæfandi líkur fyrir því að hann myndi halda áfram afbrotum gengi hann frjáls ferða sinna og því væri nauðsynlegt að hann sæti áfram í gæsluvarðhaldi. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að maðurinn hafi sætt gæsluvarðhaldi í fjóra mánuði og verði þeir nær fimm ef hinn kærði úrskurður verður staðfestur. Kjósi maðurinn að nýta rétt sinn til áfrýjunar er ennfremur ljóst að dómur í máli hans mun ekki ganga í Hæstarétti fyrr en í fyrsta lagi í september 2011. Því var úrskurðinum hnekkt en Héraðsdómur Reykjaness hafði fallist á gæsluvarðhald yfir manninum til 29. júní.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Fleiri fréttir Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjá meira