Sviðsetning sýndi fram á sakleysi Ólafs 31. maí 2011 12:00
Ólafur Helgason var handtekinn, grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína Hallgerði Valsdóttur, fyrr í þessum mánuði. Áverkar og aðkoman í íbúð þeirra þóttu þess eðlis að eitthvað óeðlilegt hefði átt sér stað. Ólafur var handtekinn og sat í gæsluvarðhaldi í viku en var látinn laus þegar allt þótti benda til að lát eiginkonu hans hefði ekki borið að með voveiflegum hætti. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar hjá Lögreglunni í Reykjavík, staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun að meðal þess sem hreinsað hefði Ólaf af grun var sviðsetning á dánarvettvangi. Með aðstoð þýsks réttarmeinafræðings var farið yfir atburðarrásina eins og Ólafur mundi best og segir Björgvin að sú aðgerð hafi varpað skýrara ljósi á hvað hefði átt sér stað. Hann sagði jafnframt að bráðabirgða niðurstaða krufningar leiddi í ljós að Hallgerður hefði ekki látist vegna áverka. Nú bíður lögreglan eftir niðurstöðum úr blóðrannsóknum áður en endanlega sé hægt að segja til um dánarorsök. Bróðir Ólafs, Helgi Helgason, sagði í fréttum okkar í gær að þessir atburðir hefðu tekið þungt á fyrir aðstandendur bæði Ólafs og Hallgerðar en þau giftu sig aðeins viku áður en Hallgerður lét lífið.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Fleiri fréttir Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Sjá meira