Hrafnistumenn standa við fullyrðingar um lyfjastuld Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. maí 2011 14:30 Hrafnista í Reykjavík.
Yfirmenn Hrafnistu vísa á bug fullyrðingum lögmanns fyrrverandi starfsmanns Hrafnistu sem vikið var úr starfi á dögunum fyrir meintan lyfjastuld. Í yfirlýsingu sem Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, og Hrönn Ljótsdóttir, forstöðumaður Hrafnistu í Kópavogi, sendu frá sér segir að starfsmaðurinn hafi víst játað fyrir þeim verknaðinn. Þau segja að yfirlýsing lögmannsins sé því miður til þess fallin að kasta rýrð á verkferla og starfsemi Hrafnistu sem og að gera stjórnendur Hrafnistu tortryggilega. Þau fullyrða jafnframt að ábyggileg gögn liggi fyrir í málinu ásamt játningu starfsmannsins. Á fundi með yfirmönnum Hrafnistu, trúnaðarmanni stéttarfélags viðkomandi starfsmanns og fulltrúa frá öryggisfyrirtæki, sem starfar með Hrafnistu í málum sem þessum, hafi starfsmaðurinn viðurkennt að hafa tekið ófrjálsri hendi nokkurt magn lyfseðilsskyldra lyfja úr lyfjaskáp Hrafnistu. „Verkferlar Hrafnistu eru mjög skýrir og öll mál hljóta formlega meðferð í samræmi við eðli máls hverju sinni. Á þeim er tekið af ábyrgð og engin mál hljóta þann framgang sem þetta tiltekna mál sýnir nema fyrir liggi borðleggjandi staðreyndir. Með játningu viðkomandi starfsmanns lauk jafnframt málinu að hálfu Hrafnistu en allur þjófnaður á Hrafnistuheimilunum varðar brottrekstri úr starfi. Í framhaldinu var málið tilkynnt til lögreglu auk Landlæknisembættisins og Lyfjastofnunar. Starfsfólk Hrafnistu hefur svo auðvitað aðstoðað þessa aðila eftir þeirra óskum við frekari rannsókn málsins,“ segir í yfirlýsingunni. Þá segjast stjórnendur Hrafnistu harma þau óþægindi sem umfjöllun um málið hafi valdið starfsfólki, heimilisfólki og ættingjum íbúa Hrafnistuheimilanna.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Sjá meira