Innlent

Um 32 þúsund manns komu í Hörpu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjöldi fólks lagði leið sína í Hörpu í dag. Mynd/ Sigurjón Ólason.
Fjöldi fólks lagði leið sína í Hörpu í dag. Mynd/ Sigurjón Ólason.
Um það bil 32 þúsund manns komu í Hörpu nú um helgina. Opnunarhátíð hefur farið fram þessa helgina. Hún byrjaði á því að ráðherrum, borgarfulltrúum, Björgólfi Guðmundssyni og fleirum var boðið á tónleika sem fram fóru á föstudagskvöld.

Í dag og í gær hefur svo verið opið húns fyrir almenning, þar sem þúsundir manna streymdu að. Í gær komu þar meðal annars fram Karlakórinn Fósbræður, Gissur Páll Gissurarson, Kammersveit Reykjavíkur, Ólafur Arnalds, Björn Thoroddsen og Kazumi Wtanabe.

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn stóðu vaktina við húsið alla helgina, enda er ekki búið að klára lokafrágang á húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×