Jafnréttisstofa telur mál Guðfríðar Lilju á gráu svæði Helga Arnardóttir skrifar 11. apríl 2011 12:10 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.
Árni Þór Sigurðsson, nýkjörinn þingflokksformaður VG vísar því alfarið á bug að brotin hafi verið jafnréttislög þegar hann tók við stöðu þingflokksformanns Vinstri grænna í stað Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur sem gegndi embættinu, áður en hún fór í fæðingarorlof. Jafnréttisstofa telur málið á gráu svæði. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var felld úr embætti þingflokksformanns Vinstri grænna í óvæntri kosningu um embættið á þingflokksfundi í gær. Árni Þór Sigurðsson sem gegnt hefur embættinu í fæðingarorlofi hennar var kjörinn í hennar stað. Guðfríður Lilja lýsti í gær yfir óánægju sinni með þetta og sagðist hafa gert ráð fyrir að geta gengið að stöðu sinni vísri eftir fæðingarorlof. Árni Þór, nýkjörinn þingflokksformaður segir kjörtímabil stjórnar þingflokksins vera eitt ár í senn. Hann segir að staðið hafi til að kjósa nýjan þingflokksformann í október en Guðfríður Lilja hafi óskað eftir að því yrði frestað þar til hún snéri aftur úr fæðingarorlofi. „Það á enginn neinar stöður af þessu tagi, hvorki þingflokksformennsku eða ráðherrasæti eða annað slíkt. Þingflokkurinn verður bara að skipa þeim málum sem hann telur best á hverjum tíma. Þetta var mat meirihluta þingflokksins, ég hef sinnt þessu starfi það sem af er þessu þingi og borið hitann og þungann af starfi þingflokksins og mörgum þótti rétt að ég kláraði þetta þing og svo yrði kosið aftur að því loknu," segir Árni Þór og vísar því alfarið á bug að brotin hafi verið jafnréttislög. „Ég skora nú á þá að þeir sem halda því fram sýni fram á að lögin hafi verið brotin. Mér finnst mikilvægt að þessum störfum verði skipt á milli kynjanna. Guðfríður Lilja er búin að vera formaður þingflokksins í helming kjörtímabilsins og mér finnst ekkert óeðlilegt við það þó að því sé skipt eins. Á sama hátt og kannski ekkert síður finnst mér að tryggja þurfi að í ráðherrahópi flokksins séu jöfn skipti milli kynja. Hlutföllin eru ekki jöfn í augnablikinu og ég vonast til að svo verði áður en kjörtímabilið verður gert upp." Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu segist ekki sjá í fljótu bragði að jafnréttislögin hafi verið brotin. „Guðfríður Lilja er ótvírætt að koma aftur í sitt starf en hins vegar er um að ræða breytingu á verkaskiptingu þannig að þetta er svona á gráu svæði. Almennt má segja að það er alltaf slæmt þegar konum í áhrifastöðum fækkar en það er greinilegt að einhver innri málefni ráða þarna för í VG, " segir Kristín.
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Sjá meira