Innlent

Hluti Bankastrætis lokaður í fyrramálið

Verið er að breyta Austurstræti í göngugötu.
Verið er að breyta Austurstræti í göngugötu.
Lokað verður fyrir umferð niður Bankastræti,  neðan Skólastrætis, í fyrramálið vegna framkvæmda á gatnamótum Austurstrætis og Lækjargötu.

Yfirborð og snjóbræðsla hefur verið endurnýjuð á helmingi gatnamótanna og í fyrramálið hefst vinna við seinni helminginn.

Áhersla er lögð á að þessi vinna taki skamman tíma og verður henni lokið fyrir páska.

Endurgerð gatnamótanna er hluti af því að breyta Austurstræti í göngugötu.

Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflun vegna framkvæmdanna, en eru jafnframt beðnir um að sýna aðgát og virða afmörkun vinnusvæða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×