Kínverjar hyggjast sigla til Íslands um Norðurpólinn 11. apríl 2011 18:45 Snjódrekinn, stærsti ísbrjótur heims sem ekki er knúinn kjarnorku
Kínversk stjórnvöld áforma að senda ísbrjót yfir Norðurheimskautið til Íslands í sumar og yrði þetta í fyrsta sinn sem skip kæmi þessa leið frá Kyrrahafinu til Íslands. Jafnframt gæti leiðangurinn orðið heimssögulegur viðburður. Hugmyndin að leiðangrinum var rædd í Kínaheimsókn forseta Íslands síðastliðið haust. Ólafur Ragnar Grímsson fundaði þá með fulltrúum kínversku heimskautastofnunarinnar í Shanghai og bauð þeim að næsti norðurslóðaleiðangur Kínverja kæmi við á Íslandi. Forstjóri Heimskautastofnunar Noregs tjáði norrænum fréttamönnum á fundi í Tromsö fyrir helgi að Kínverjar ætli að þiggja boð forseta Íslands og senda helsta stolt sitt, ísbrjótinn Snjódrekann, í sögulegan leiðangur frá Kína til Íslands í sumar. Snjódrekinn er stærsti ísbrjótur heims sem ekki er knúinn kjarnorku. Leið skipsins frá Kína mun væntanlega liggja um Japanshaf og Kyrrahaf, um Beringssund og síðan svokallaða norðausturleið meðfram norðurströnd Rússlands, norður fyrir Noreg og þaðan til Íslands. Tekið skal fram að hvorki utanríkisráðuneytið íslenska né forsetaembættið hafa fengið staðfestingu frá Kínverjum um leiðangur Snjódrekans til Íslands í sumar. Með því að láta skipið í bakaleiðinni sigla vestur fyrir Grænland svokallaða norðvesturleið meðfram norðurströnd Kanada, norður fyrir Alaska og þaðan inn á Kyrrahaf gæti leiðangur kínverska ísbrjótsins um Norðurpólinn milli Kína og Íslands orðið heimssögulegur viðburður. Þótt tveir Norðmenn hafi í fyrra á seglskútu orðið fyrstir manna til að sigla báðar norðurleiðirnar á sama ári fóru þeir ekki inn á Kyrrahafið í sínum leiðangri. Kínverski Snjódrekinn gæti þannig í Íslandsleiðangrinum í sumar orðið fyrsta skip sögunnar til að sigla á sama sumri milli stóru heimshafanna beggja, Atlantshafs og Kyrrhafs, með því að fara báðar Norðurleiðirnar um heimsskautið.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira