Vantrauststillagan umdeild á meðal stjórnarandstöðuliða Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 13. apríl 2011 12:03 Bjarni Benediktsson.
Meirihluti stjórnarþingmanna telja öruggt að vantrauststillaga Sjálfstæðismanna verði felld við atkvæðagreiðslu í kvöld. Óánægja er meðal stjórnarandstöðuþingmanna með framgöngu Bjarna Benediktssonar í málinu. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins lagði fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina á Alþingi í gær. Tillagan verður tekin til umræðu klukkan fjögur í dag en talið er að umræður muni standa í allt að fimm klukkustundir. Að því loknu fer fram atkvæðagreiðsla. Þeir þingmenn sem fréttastofa ræddi við í morgun telja líklegt að tillagan verði felld. Vafaatkvæði verði hjá þingmönnum Hreyfingarinnar, sem ekki hafa tekið afstöðu til tillögunnar, sem og hjá Atla Gíslasyni og Lilju Mósesdóttur sem nýverið sögðu sig úr þingflokki Vinstri Grænna. Þá efast heimildarmenn fréttastofu um stuðning Sivjar Friðleifsdóttur og Guðmundar Steingrímssonar þingmanna Framsóknar við tillöguna. Formaður framsóknarflokksins hefur sagt að Þingflokkur Framsóknar muni funda um málið í dag. Þá gagnrýna nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar, meðal annars Hreyfingarinnar og framsóknar, vinnubrögð Bjarna Benediktssonar við gerð tillögunnar. Skort hafi samráð við aðra þingmenn stjórnarandstöðunnar. Þingmenn Hreyfingarinnar telja að ekki eigi að tilgreina dagsetningu þingrofs því það geti torveldað störf stjórnlagaráðs. Bjarni ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Framsóknarflokksins, en honum hafi ekki þótt þetta vera rétti tíminn til að leggja hana fram. Bjarni hafi engu að síður lagt tillögunar fram. Bjarni segist hafa lagt tillöguna fram með loforði um stuðning stjórnarandstöðunnar. Hann ræddi þó ekki við Hreyfinguna. Vantrauststillögur hafa verið lagðar fram fjórtán sinnum á Alþingi, Engin þeirra hefur verið samþykkt.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Sjá meira