Innlent

Ekið á ungling í Hafnarfirði

Sjúkrabílar. Myndin er úr safni.
Sjúkrabílar. Myndin er úr safni.
Ekið var á unglingsstúlku á Strandgötu í Hafnarfirði um miðnætti og féll hún í götuna. Hún mun hafa meiðst á öxl og hálsi og var hún flutt á slysadeild Landsspítalans með sjúkrabíl.

Ekki er vitað um tildrög slyssins, en stúlkan var á gangbraut, þegar ekið var á hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×