Það gengur ekkert lengur að ég heiti Hólmfríður Erla Hlynsdóttir skrifar 14. apríl 2011 09:35 „
Ég er auðvitað ekki ánægður með þetta," segir Hans Miniar Jónsson en mannanafnanefnd hefur hafnað umsókn hans um að nafnið Miniar skuli fært í mannanafnaskrá. Hans Miniar er á lokastigum kynleiðréttingarferlis en sem barn var hann nefndur Hólmfríður. Heimilt er að sækja um nafnabreytingu einu sinni á lífsleiðinni og til stóð að Hans Miniar myndi sækja um að fá nafni sínu breytt í það nafn sem hann gengur nú undir. Eftir að ákvörðun mannanafnanefndar lá fyrir hafði hann val á milli þess að sækja aftur um að Miniar yrði leyfilegt nafn, og þá reyna að fá það í gegn með öðrum rithætti, eða sækja þegar um að fá nafni sínu einfaldlega breytt í Hans Jónsson. „Það gengur ekkert lengur að ég heiti Hólmfríður," segir hann djúpri röddu. „Ekki eins og ég lít út núna," segir hann. Ástæða þess að nafninu Miniar var hafnað er sú að ritun þess samræmist ekki í íslenskum rithefðum.Hans Miniar ætlar hins vegar að halda áfram að nota nafnið þó það fáist ekki skráð í Þjóðskrá. „Ég þrjóskast bara við," segir hann. Hans Miniar er 27 ára gamall, búsettur á Akureyri og giftur karlmanni. Hann er lengi búinn að vera í ferli til kynleiðréttingar. „Nú er ég bara að bíða eftir tíma í brottnám brjósta," segir hann. Hans Miniar bendir á að það séu ekki allir transmenn sem fari í aðgerð á kynfærum og er sjálfur ekki viss um hvort hann ætlar að gera það. „Það er hægt að gera mun minna fyrir okkur strákana," segir hann en mun flóknara er að endurgera kynfæri karla en kvenna. Miklar framfarir hafa þó orðið í þessum efnum á síðustu árum og reiknar Hans Miniar fastlega með að straumhvörf verði á næstu tíu til tuttugu árum. „Þá verður örugglega hægt að gera meira," og ætlar hann því að bíða og sjá.
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira