Bjarni segir að ríkisstjórnin verði að boða til kosninga 7. apríl 2011 13:43 Bjarni Benediktsson. MYND/GVA
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að fylgishrun Já-hreyfingarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave skýrist fyrst og fremst af óvinsældum ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin þurfi að boða til kosninga til að ná fram málefnalegri niðurstöðu í atkvæðagreiðslunni um Icesave. Algjör umsnúningur hefur orðið í afstöðu þjóðarinnar til Icesave málsins ef marka má tvær nýlegar kannanir. Samkvæmt könnun sem MMR gerði fyrir fréttastofu Stöðvar tvö í gær ætla tæplega fimmtíu og sjö prósent þjóðarinnar að segja nei í atkvæðagreiðslunni á Laugardag. Í könnun sem Fréttablaðið birti í dag kemur fram að 55 prósent ætla að segja nei. Allar fyrri kannanir bentu hins vegar til þess að Icesave málið yrði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að kjósendur séu fyrst og fremst að lýsa yfir óánægju með núverandi ríkisstjórn. „Nú hefur það verið þannig að það hefur verið talsverð sveifla í stuðningi við þetta mál. Ég sé enga aðra skýringu en þá að kosningin sé farin að snúast um ríkisstjórnina," segir Bjarni og telur að óvinsældir hennar geri það að verkum að kjósendur reyni að kjósa hana í burtu með því að segja nei í Icesave málinu. Bjarni segir að eina færa leiðin fyrir ríkisstjórnina sé að boða til kosninga. Þannig væri hægt að fá kosningu um málið eins og það liggur fyrir. Aðeins fjórðungur kjósenda Sjálfstæðisflokks ætlar að styðja Icesave málið í atkvæðagreiðslunni á laugardag samkvæmt könnun MMR. Bjarni segir að það hafi alltaf legið fyrir að málið væri umdeilt innan flokksins. „Það var minn málflutningur að réttast væri að úrslitaákvörðun í þessu máli hvíldi hjá kjósendum í þessu landi."
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira