Innlent

Mikill eldur í mannlausum bíl

Mikill eldur gaus upp í mannlausum bíl, sem stóð fyrir utan  íbúðarhús á Seltjarnarensi um klukkan fjögur í nótt.

Þegar slökkvilið kom á vettvang var mikið bál  og voru eldtungur farnar að svíða nálægan bíl og dyraumbúnað hússins en slökkviliðinu tókst að koma í veg fyrir að eldur næði að læsa sig í húsið og bílinn.

Slökkvistarf gekk greiðlega en bíllinn, sem kviknaði í, er gerónýtur. Eldsupptök eru ókunn, en meðal annars verður rannsakað hvort kveikt hafi verið í bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×