Ísland verði stórveldi innan ESB í sjávarútvegsmálum 7. júní 2011 11:12 Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði og varaþingmaður Samfylkingarinnar. Baldur tók sæti á Alþingi í gær í fjarveru Marðar Árnasonar.
Baldur Þórhallsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir Ísland geta orðið stórveldi á sviði sjávarútvegsmála innan Evrópusambandsins. Hann kallaði eftir afstöðu formanns Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum við upphaf þingfundar í dag. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins gaf lítið fyrir yfirlýsingar Baldurs og sagði lagasetningu Evrópusambandsins stórhættulega. Baldur beindi spurningum sínum til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um Ísland og Evrópumálin. Sjálfstæðisflokkurinn hafi eitt sinn verið mikilvægasti hlekkurinn í tengingu landsins við vestræna samvinnu. Í dag fari vestræn samvinna Evrópuþjóða fram á vettvangi Evrópusambandsins. Baldur sagði eina mestu breytingu sem orðið hafi á stjórnskipun Íslands hafi átt sér stað með gildistöku samninganna um Evrópska efnhagsssvæðið og Schengin. Með samningunum hafi Íslendingnar tekið á sér þær kvaðir að taka inn stóran hluta löggjafar Evrópusambandsins án þess að geta haft áhrif á löggjöfina nema að takmörkuðu leiti.Ólýðræðislegur samningur Baldur vildi vita hversu lengi Sjálfstæðisflokkurinn og leiðtogi hans ætlaði að sætta sig við að Alþingi og stjórnvöld hefðu nær engan möguleika á að hafa áhrif á þá löggjöf sem landsmenn væru skikkaðir til að fara eftir vegna aðildar að EES og Schengin. EES samningurinn hafi að mörgu leiti verið Íslendingum til góðs. Hann sé hins vegar ekki ásættanlegur fyrir þjóð sem telji sig sjálfstæða og fullvalda. „Samningurinn er einn sá ólýðræðislegasti alþjóðasamningur sem nokkurn tímann hefur verið gerður af sjálfstæðri þjóð, ef ekki sá ólýðræðislegasti." Þá sagði Baldur: „Ef löggjöf Evrópusambandsins er svona góð og við þurfum ekki að hafa áhrif á hana þá hlýtur að vera enn betra fyrir okkur að vera innan sambandsins þar sem við getum meðal annars haft frumkvæði að lögum og gert Ísland að stórveldi þegar kemur að sjávarútvegsmálum innan sambandsins."Völd færð frá fólkinu með inngöngu Bjarni svaraði spurningu Baldurs ekki að fullu en sagði Alþingi ekki nýta öll þau tækifæri sem gefast í ESS samstarfinu til þess að hafa áhrif. Þingið hafi ekki tekið þátt í nefndarstarfi á því stigi mála þegar engar ákvarðanir hafi verið teknar og áður en þau væru tekin upp í EES-samningnum. Bjarni sagði ekki hægt að halda því fram að með því að undirgangast fleiri svið Evrópusambandsins myndi Ísland öðlast meiri völd. Ísland fengi 4-6 þingmenn af 800 á Evrópuþinginu. „Því verður náttúrlega ekki haldið fram með rökum að þeir þingmenn geti haft einhver áhrif sem máli skipti." Jafnframt sagði Bjarni lýðræðishalla vera innan Evrópusambandsins og innganga í sambandið myndi færa valdið lengra frá fólkinu.Ofmat Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók þátt í umræðunni og gaf lítið fyrir hugmyndir Baldurs um Ísland sem stórveldi á sviði sjávarútvegsmála innan Evrópusambandsins. Hann sagði auk þess lagasetningu sambandsins vera stórhættulega. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, talaði um ofmat í þessu samhengi. Ísland fengi að auki fáa þingmenn á Evrópuþinginu við inngöngu. „Slík þjóð verður ekki stórveldi á þessum vettvangi." Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði þjóðir vel geta haft áhrif óháð stærð þeirra. Það væri ekki það sama að vera inni í fundarherberginu og að sitja frammi á gangi.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Fleiri fréttir Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjá meira