Leigjendur íbúðarhúsnæðis njóta liðsinnis Neytendasamtakanna 7. júní 2011 15:13 Samkvæmt samningnum mun þjónustan felast í því að Neytendasamtökin veiti leigjendum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt sinn og skyldur samkvæmt húsaleigulögum.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirritaði í dag þjónustusamning við Neytendasamtökin um leiðbeiningarþjónustu við leigjendur. Frá því að Leigjendasamtökin hættu starfsemi sinni hafa Neytendasamtökin í vaxandi mæli sinnt aðstoð við leigjendur og svarað fyrirspurnum um leigumál eftir bestu getu. Þetta kemur fram í frétt á vef Neytendasamtakanna. Samkvæmt samningnum mun þjónustan felast í því að Neytendasamtökin veiti leigjendum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt sinn og skyldur samkvæmt húsaleigulögum. Gert er ráð fyrir að samtökin byggi upp upplýsingavef fyrir leigjendur á heimasíðu sinni auk þess sem þau muni veita leigjendum viðtal í gegnum síma eða á skrifstofu sinni. Jafnframt muni leigjendur eiga kost á lögfræðilegri ráðgjöf að því er varðar rétt leigjenda og skyldur. Þá er í samningnum mælt fyrir um að Neytendasamtökin taki að sér milligöngu við úrlausn ágreinings milli leigjenda og leigusala ásamt því að aðstoða leigjendur við að leggja ágreining fyrir kærunefnd húsamála ef þörf krefur. Með samkomulagi velferðarráðuneytisins og Neytendasamtakanna mun þjónusta við leigjendur eflast til muna. Þjónustusamningurinn sem er liður í stefnumótun ráðuneytisins um að efla leigumarkað verður til mikilla hagsbóta fyrir leigjendur auk þess sem samstarf við Neytendasamtökin mun auðvelda ráðuneytinu að liðsinna leigjendum og styrkja stöðu þeirra. Á vegum velferðarráðuneytisins er nú unnið að endurskoðun húsaleigulaga. Leigjendur geta hringt í síma 5451200 og fengið leiðbeiningar og aðstoð á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12:30 - 14:00. Einnig geta þeir sent fyrirspurn í tölvupósti á netfangið ns@ns.is. Þá er skrifstofa samtakanna opin kl. 9:00-15:00 alla virka daga að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Sjá meira