Sér ekki ástæðu til þess að stofna rannsóknarnefnd 28. ágúst 2011 12:30 Valgerður Bjarnadóttir.
Varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis hefur ekki nokkra trú á að þingstyrkur sé fyrir skipun rannsóknarnefndar til að rannsaka stuðning Íslands við aðgerðirnar í Líbíu. Hún segist ekki geta séð annað en að meirihluti hafi verið fyrir þessum stuðning á Alþingi. Á flokksráðsfundi Vinstri grænna á Hótel Loftleiðum í gær var samþykkt ályktun þess efnis að því yrði beint til Alþingis að skipuð yrði rannsóknarnefnd til að rannsaka aðdraganda þess að Ísland samþykkti aðgerðir Atlantshafsbandalagsins í Líbíu. Í ályktuninni segir að árásir bandalagsins hafi beinst að borgaralegum skotmörkum og valdið miklu tjóni og dauða fjölda óbreyttra borgara. Ályktunin er athyglisverð fyrir þær sakir að formaður utanríkismálanefndar Alþingis er Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna. Ekki hefur náðst í Árna Þór, en Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður nefndarinnar, segist ekki hafa nokkra trú á að meirihluti sé fyrir því á þingi að skipa slíka nefnd. Hún telur aðgerðirnar rúmist fyllilega innan samþykkta öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þá hafi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mætt á fund utanríkisnefndar og útskýrt stöðu mála. Valgerður segir að á þeim fundi hafi hún ekki séð annað en að það væri meirihluti í nefndinni fyrir þessum aðgerðum. Valgerður segir að það sé ekki léttvægt fyrir nokkurn mann að styðja hernaðaraðgerðir, en aðgerðirnar hafi verið nauðsynlegar til að koma Muammar Gaddafi frá sem hafi haldið þjóð sinni í heljargreipum í fjörutíu ár. „Ég sé enga ástæðu til þess að stofna rannsóknarnefnd um þetta mál," segir Valgerður Bjarnadóttir, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Sjá meira