Tíðkaðist að aka inn þrátt fyrir bann Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. október 2011 11:15 Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins. Mynd/Vilhelm
Það er Íslenska gámafélagið sem á þann bíl sem ekið var í veg fyrir hjólreiðamann á Dalvegi á miðvikudag með þeim afleiðingum að hann varð undir bílnum og slasaðist alvarlega. Fram kom í tilkynningu frá lögreglunni í morgun að verið er að rannsaka hvort vinnureglur og jafnvel fyrirmæli yfirmanna fyrirtækis, sem staðsett er á Dalvegi, hafi gert ráð fyrir innakstri á stað þar sem innakstur er bannaður. „Ég kannast við að þær vinnureglur hafi verið viðhafðar að fara inn um hinn enda gámastöðvarinnar," segir Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins, aðspurður um það hvort yfirmenn fyrirtækisins hafi gefið slík fyrirmæli. Jón Þórir segir að þessar vinnureglur séu tilkomnar af tvennu. Annars vegar vegna vinnuhagræðis og hins vegar til þess að koma í veg fyrir að stór vinnutæki séu innan um mikið af gangandi fólki. Hann segir jafnframt að þessi vinnuregla sé ekki viðhöfð nú eftir að slysið varð. Aðspurður segir Jón Þórir að lögreglan hafi ekki kynnt fyrir sér rannsókn málsins.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Fleiri fréttir Árásarmaður elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Sjá meira