Komin með nóg - ætla að flýja til Noregs Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 7. október 2011 18:45
Fjögurra barna móðir segist ekki lengur ná endum saman og því hafi fjölskyldan ákveðið að flýja land. Hún hefur keypt miða aðra leið til Noregs á sunnudaginn. „ Það er ekki fjölskylduvænt að búa á Íslandi og við höfum ekki efni á því. Þannig að við ákváðum bara að drífa okkur að prufa eitthvað nýtt," segir Heiða Hrund Matthíasdóttir en sem hafði í nógu að snúast í dag við að pakka niður. Hún flytur af landi brott á sunnudaginn ásamt eiginmanni sínum og fjórum dætrum sem eru á aldrinum tveggja til tólf ára. „ Það er allt orðið dýrt. Það er dýrt að fara út að versla þó maður versli nánast bara í Bónus. Það hefur bara snarhækkað," segir hún. Hún segir ástandið hér á landi vera erfitt fyrir barnfólk. „ Við getum alls ekki náð endum saman. Samt erum við bæði í vinnu og við vinnum sitt og hvað svo við þurfum ekki að borga fyrir barnapössun. Það skiptir engu máli. Við náum engan vegin endum saman," segir hún. Heiða hefur undanfarið starfað við heimaþjónustu í Reykjavík en maðurinn hennar er kokkur. Eiginmaðurinn er kominn með vinnu við laxaslátrun í bænum Fjelberg í Vestur Noregi og vonast Heiða til að fá vinnu sem kennari í nágrenninu. Heiða segir heildartekjur þeirra hjóna nú vera um 350 þúsund á mánuði eftir skatta. Þau borgi 150 þúsund krónur í leigu en fái ekki nema sjö þúsund krónur í húsaleigubætur þó þau séu með fjögur börn. Þau þurfi svo að borga af bíl og tryggingar og mat ofan í börnin. Þannig að launin dugi ekki til. Til samanburðar hafi hjónin reiknað út að þó aðeins annað þeirra fái vinnu í Noregi þá hafi þau meiri ráðstöfunartekjur. Inni í þeim tekjum eru barnabætur sem eru um tuttugu þúsund krónur á barn á mánuði. Heiða segir að nú þegar þrjú ár eru frá efnahagshruninu hafi lítið rofað til. „ Það var ekkert 2007 góðæri hjá okkur. Við höfum ekkert upplifað það. Þetta bara versnaði. Það var þolanlegt en núna er þetta bara að versna meira og meira. Og maður sér ekkert að það sé að fara að breytast neitt," segir Heiða Hrund að lokum.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira