Krafa 50 þúsund Íslendinga gæti kostað yfir 30 milljarða 12. janúar 2011 18:52 Ross Beaty, eigandi Magma Energy. Fyrirtækið er nú langstærsti hluthafi HS orku. Mynd/GVA
Tæplega 50 þúsund manns skora á stjórnvöld að tryggja ríkinu eignarhald á orkuauðlindum landsins. Ef ríkið tekur HS Orku eignarnámi má telja að greiða þurfi Magma 33 milljarða í bætur. Tæplega 50 þúsund manns hafa nú áritað áskorun til stjórnvalda um að koma í veg fyrir söluna á HS Orku og skora jafnframt á Alþingi að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. Magma Energy er nú langstærsti hluthafi HS orku með 98,53% hlut en aðrir hluthafar í félaginu eru sveitarfélögin Garður, Grindavík, Reykjanesbær og Vogar - með samanlagt 1,47% hlut. Magma Energy keypti hlut sinn í HS Orku af ýmsum aðilum en heildarfjárfesting Magma nemur 31 milljarði króna. Þá var hlutafé aukið um rúma tvo milljarða en HS Orka hefur ekki greitt arð eftir að Magma Energy eignaðist meirihluta í félaginu. Fréttastofa Stöðvar 2 hefur áður greint frá því að til að verða við kröfum þeirra sem skrifað hafa undir áskorun til stjórnvalda um að ríkið tryggi sér eignarhald á HS Orku verði að beita eignarnámi eða semja við Magma Energy um kaupin en samkvæmt stjórnarskránni verður fullt verð að koma fyrir eignarnám. Matsnefnd eignarnámsbóta metur verðið sem greiða þarf í bætur fyrir eignarnám en samkvæmt heimildum fréttastofu þyrfti nefndin að líta til heildarfjárfestingu Magma í HS Orku sem nú nemur rúmum 33 milljörðum króna. Þá þyrfti einnig að taka tillit annarra þátta en bótaskylda ríkisins yrði því að lágmarki 33 milljarðar króna, en til samanburðar má líta til þess að niðurskurður hjá öllum ráðuneytum í fjárlögum var samtals rúmir 27 milljarðar.
Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Myndband sýnir ferðamenn hætt komna í miklum öldugangi við Reynisfjöru Innlent Kalt veður skilaði metári í vatnsnotkun Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent Geta læknað unglingaveikina Erlent Fleiri fréttir Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Sjá meira