Samið við Læknavaktina 15. apríl 2011 15:09
Samningar hafa tekist milli Sjúkratrygginga Íslands og Læknavaktarinnar ehf. um móttökuvakt og vitjanaþjónustu heimilislækna utan dagvinnutíma heilsugæslustöðva í Reykjavík og nágrenni. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra staðfesti samningana í dag. „Læknavaktin ehf. sagði upp gildandi samningi 1. febrúar og átti uppsögnin að taka gildi 1. maí næstkomandi. Læknavaktin hefur sinnt móttöku sjúklinga og vitjanaþjónustu utan dagvinnutíma heilsugæslustöðva í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, á Seltjarnarnesi og Álftanesi,“ segir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. „Nýju samningarnir sem ráðherra staðfesti í dag gilda til ársloka 2012. Samkvæmt þeim er áætlað að Læknavaktin annist um 63.000 móttökur sjúklinga á ári og sinni um 4.000 vitjunum í heimahús. Sú breyting er gerð frá núgildandi samningi að vitjanaþjónusta lækna frá miðnætti til átta á morgnana fellur niður. Á þeim tíma verður starfrækt símaþjónusta hjúkrunarfræðings en bráðatilvikum verður vísað til úrlausnar á bráðamóttöku Landspítala,“ segir ennfremur en áætlaður kostnaður ríkisjóðs vegna samninganna er um 275 milljónir króna á ársgrundvelli. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segist fagna því innilega að samningar hafi tekist milli aðila. Þetta sé mikilvæg þjónusta við almenning sem ekki megi rofna og nú hafi hún verið tryggð til lengri tíma.
Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Erlent Fleiri fréttir Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Sjá meira