Fjórflokki ekki treyst 13. febrúar 2010 08:00 Hverju skilaði Búsáhaldabylting? Á ráðstefnu Háskólans í Bifröst í gær voru stjórnmálamenn hvattir til að láta af Morfís-tilburðum og viðurkenna mistök sín. Þannig gætu þeir endurheimt traust almennings. Fréttablaðið/GVA
Þær miklu vonir sem vöknuðu í brjóstum fólks í búsáhaldabyltingunni, svo sem um lýðræðisumbætur og stjórnlagaþing, hafa ekki ræst. Þótt vinstrimenn hafi í fyrsta sinn hreinan meirihluta hefur landslag stjórnmála ekki breyst í grunninn. Fjórflokknum var ekki hafnað í kosningum og þátttaka í prófkjörum hans hefur ekki minnkað. Varla er hægt að tala um raunverulega byltingu því stjórnkerfið er einnig óbreytt. Helsta breytingin í viðhorfi almennings til stjórnmálalífs er sú að nú er stjórnmálamönnum meira og minna vantreyst. Það er þeirra helsta verkefni að endurverkja þetta traust. Allt þetta kom fram í ræðum nokkurra fræðimanna á ráðstefnunni Hverju hefur Búsáhaldabyltingin skilað? sem Háskólinn á Bifröst stóð fyrir í Iðnó í gær. „Mér þætti synd og skömm ef ekki einu sinni eftir þessa miklu atburði væri hægt að ráðast í gagngera, nauðsynlega og róttæka endurskoðun stjórnarskrárinnar,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. Til hefði staðið að endurskoða stjórnarskrá síðan 1944. Flokkarnir hefðu alltaf hummað það fram af sér. Núverandi flokkar gerðu það sama. Þetta sýndi „ægivald fjórflokksins“. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur rakti í erindi sínu kannanir á afstöðu almennings og þátttöku í stjórnmálum. Í síðustu kosningum hafi fleiri nýir þingmenn verið kosnir inn en áður. En helsta breytingin sé sú að yfir fjörutíu prósent fólks telja nú að fáum eða engum stjórnmálamanni sé treystandi. Meirihluti kjósenda telur spillingu útbreidda meðal stjórnmálamanna. Ólafur segir brýnt að stjórnmálamenn geri heiðarlega upp fortíðina, til að endurheimta traust almennings. Þeir þurfi að viðurkenna mistök sín. Hann telur að um fimmtungur þjóðarinnar hafi tekið þátt í mótmælunum, sem sé mjög mikið. Sjötíu prósent kjósenda hafi svo reynst hlynnt mótmælunum, miðað við kannanir. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Fleiri fréttir Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Sjá meira