Dönsuðu tangó fram á morgun Karen Kjartansdóttir skrifar 20. mars 2010 12:04 Það var dansað fram á morgun.
Tangóunnendur og tangódansarar skemmtu sér í Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur í nótt og dönsuðu fram á morgun. Tilefnið var upphaf þriggja daga tangómaraþons sem ætlað er að styrkja og vekja athygli á átakinu Karlmenn og krabbamein. Tangódansarar landsins ættu að hafa nóg fyrir stafni um helgina. Í gærkvöldi klukkan átta hófst þriggja daga tangómaraþon sem Tangófélagið efndi til til styrktar átaki Krabbameinsfélags Íslands í mars. Tangómaraþonið sjálft ber heitið Opinn faðmur og vísar til þess að öllum er boðið að vera með í þessu átaki svo lengi sem þeir breiði út faðminn, tilbúnir í dans. Dagskráin hófst í gærkvöldi og er óhætt að segja að þátttakendur hafi dansað hafi verið fram á rauða nótt þar sem dansað var til klukkan fimm í morgun. Nú um hádegi byrjar dans ástarinnar aftur að duna og mun ekki stöðvast fyrr en í kvöld þegar haldið verður í kvöldverð á veitingahúsinu Pisa klukkan sjö. Um hálf níu byrjar fólk aftur að dilla sér við hrynjandi tónlistarinnar og mun væntanlega ekki linna látunum fyrr en klukkan fimm í nót ef að líkum lætur. Áhugasömu fólki sem ekki hefur lært tangó er bent á að aðgangseyrir er 3500 krónur en fyrir það fé fæst kennsla, aðgangsmiði á maraþonið og bolur. Allur ágóði rennur til átaksins Karlmenn og krabbamein. Ekki mun væsa um gesti að sögn skipuleggjanda maraþonsins því í boði verður te, kaffi, vatn og ávextir á meðan á maraþoni stendur. Dagskráin stendur allt til klukkan sex á sunnudag.
Mest lesið Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Fleiri fréttir Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Sjá meira