ECA svarar ekki spurningum fréttastofu Erla Hlynsdóttir skrifar 15. september 2010 09:18
Forsvarsmenn ECA Program Limited svara því ekki hvort þeir séu þegar farnir að ráða inn fólk til að starfa á fyrirhugaðri starfsstöð hér á landi. Blaðamaður Vísis sendi fyrirspurn til ECA þann 3. september, fyrir tíu dögum síðan, þar sem meðal annars var spurst fyrir um mannaráðningar fyrirtækisins. Vísir fékk ábendingu um að ECA væri byrjað að leita að fólki til að starfa hjá sér á Íslandi og hafði því samband í gegn um netfang sem gefið er upp á vef fyrirtækisins. Auk þess spurði blaðamaður hverjir væru eigendur ECA, hvernig fyrirtækið væri fjármagnað, hvaða starfsreynslu forsvarsmenn þess hefðu og hvort ECA hefði gert þjónustusamninga við fyrirtæki hér á landi vegna fyrirhugaðrar starfsemi. Einnig voru forsvarsmenn beðnir um að staðfesta það sem íslensk yfirvöld hafa gefið út um að 150 til 200 störf geti skapast komi ECA hingað til lands. Engum þessara spurninga hefur fengist svar við frá ECA. Vísir greindi frá því 3. september að á vef ECA birtist frétt þess efnis að þar á bæ væri litið svo á að íslensk yfirvöld hefðu veitt fyrirtækinu fullnaðarleyfi fyrir starfsemi hér á landi. Daginn áður fóru fram ráðherraskipti í samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu þar sem Ögmundur Jónasson tók við af Kristjáni L. Möller. Kristján hafði áður en hann lét af embætti falið Flugmálastjórn að hefja undirbúning að skráningu flugvéla ECA hér á landi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Eftir að fréttin birtist á vef ECA sendi ráðuneytið frá sér yfirlýsingu þar sem ítrekað var að engin leyfi hafi verið veitt vegna skráningarinnar og málið enn í ferli. Engu að síður stendur fréttin enn á vef ECA. Tengdar fréttir: ECA lítur svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt Ekkert samkomulag um skráningu herþotna á Íslandi
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira