Greina Alzheimer með mænustungu 11. ágúst 2010 04:00 Deilt er um nákvæmni greiningar sem byggð er á mænustungu.
Vísindamenn í Belgíu hafa birt niðurstöður rannsókna, þar sem leitað var í mænuvökva fólks eftir ákveðnum prótínum sem grunuð eru um að eiga þátt í Alzheimersjúkdómnum. Í ljós kom að þessi ákveðnu prótín, amyloid og tau, var ekki aðeins að finna í 90 prósentum þeirra Alzheimersjúklinga sem tóku þátt í rannsókninni, heldur einnig í 72 prósentum þeirra þátttakenda sem mælst hafa með væg einkenni heilabilunar. Að auki var þau að finna í 36 prósentum þeirra þátttakenda, sem heilbrigðir töldust. Á hverju ári er talið að um milljón manns byrji að fá væg einkenni heilabilunar, sem skilgreinast alvarlegri en eðlileg elliglöp án þess þó að greinast sem Alzheimersjúkdómur. Athygli lækna beinist nú meðal annars að því að greina hverjir úr þessum hópi eiga eftir að fá Alzheimersjúkdóminn eða önnur alvarleg vitglöp. Mænustunga er aðeins ein þeirra aðferða, sem farið er að nota til þess að fá vísbendingar um þetta. Ljóst þykir að Alzheimersjúkdómurinn byrjar að herja á heila einstaklinga að minnsta kosti áratug áður en fyrstu minnistruflana verður vart. Þetta vekur vonir um að hægt verði að hægja á þróun hans, ef byrjað er að gefa lyf nógu snemma. Enn er þó deilt um nákvæmni greiningar sem byggð er á mænu-stungu. Rannsóknir á látnu fólki sýna að fjórðungur þeirra, sem deyja í hárri elli án nokkurra elliglapa, eru með prótínið amyloid í mænuvökva. „Það síðasta sem við viljum er að segja einhverjum að hann muni fá Alzheimersglöp ef hann fær þau síðan ekki,“ segir Marilyn Albert, vísindamaður við Johns Hopkins-háskólann í Bandaríkjunum. Margir læknar telja þó vissara að bíða ekki eftir greiningu. Samkvæmt rannsókn, sem birtist í tímaritinu Neurology í síðustu viku, byrja 70 prósent þeirra lækna, sem spurðir voru, að gefa lyf við Alzheimer fljótlega eftir að væg einkenni heilabilunar greinast, í þeirri von að hægja megi á þróun Alzheimers – jafnvel þótt ekki sé vitað hvort lyfin bera nokkurn árangur. - gb
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira