Eldgosin koma við pyngjuna 18. október 2010 06:00 Rjúfa þurfti þjóðveginn til að hlífa brúnni yfir Markarfljót vegna hlaups í ánni þegar gaus í Eyjafjallajökli. fréttablaðið/vilhelm
Heildarkostnaður þeirra sem komu að málum vegna eldgosanna í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi árið 2010 er metinn á rúmlega 800 milljónir króna. Stærstu einstöku liðirnir þar eru 190 milljónir til Bjargráðasjóðs, 117 milljónir til Vegagerðarinnar og 116 milljónir til Landgræðslu ríkisins. Af öðrum stórum liðum má nefna Veðurstofu Íslands með 78 milljónir og Ríkislögreglustjóra með 54 milljónir. Tillögur til að mæta þessum kostnaði koma fram í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2010. Tillögurnar að fjárveitingunum eru byggðar á niðurstöðu samráðshóps ráðuneytisstjóra fimm ráðuneyta sem settur var á laggirnar til að leggja mat á kostnað þeirra aðila sem komu að aðstoð meðan á eldsumbrotunum stóð og þeirra sem komið hafa að uppbyggingu í kjölfar hamfaranna. Í skýringum við frumvarpið kemur fram að tuttugu aðilar bera umtalsverðan kostnað vegna hamfaranna. Eins og gefur að skilja ber Bjargráðasjóður hitann og þungann af þessum kostnaði ásamt Vegagerðinni og Landgræðslunni. Hlutverk Bjargráðasjóðs er að veita einstaklingum, félögum og sveitarfélögum fjárhagsaðstoð til að bæta bein tiltekin tjón af völdum náttúruhamfara. Kemur þar inn í myndina tjón á fasteignum, landi, tækjum og bústofni eða afurðum. Vegagerðin þurfti að leggja í verulegan kostnað þegar rjúfa þurfti þjóðveg 1 vegna flóða niður Markarfljót. Kostnaðurinn við að koma hringveginum í samt horf, ásamt öðru smálegu, er metinn á 117 milljónir. Þá fær Landgræðslan 70 milljónir króna vegna uppbyggingar varnargarða vegna flóðanna. Til viðbótar við þær 800 milljónir sem mælt er með að renni til ýmissa stofnana og viðbragðsaðila má nefna 350 milljónir vegna markaðsátaks í íslenskri ferðaþjónustu til að vega á móti neikvæðum áhrifum eldgosanna. Frá því að Landeyjahöfn var tekin í notkun í júlí á þessu ári hefur verið erfiðleikum bundið að halda henni opinni vegna sandburðar. Ein ástæða þessa er að mikið magn gosefna frá gosinu í Eyjafjallajökli berst inn í höfnina og 180 milljónir þarf til að mæta kostnaði vegna þessa. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Innlent „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Fleiri fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Sjá meira