Erlent

Skartgripum og lúxusúrum stolið í London

Brotist var inn í tvær verslanir í miðborg London í gærkvöldi og skartgripum og úrum stolið. Þjófarnir eru ófundnir en ekki liggur fyrir hversu mikið þeir höfðu upp úr krafsinu.

Umræddar verslanir, De Beers og Omega, eru í vel metinni verslunarmiðstöð í fjármálahverfi borgarinnar. De Beers er stærsti framleiðandi demanta í heiminum og Omega sérhæfir sig í sölu á svissneskum lúxusúrum.

Á eftirlitsmyndavélum sjást þrír menn klæddir sem öryggisverðir verslunarmiðstöðvarinnar taka myndir fyrir utan verslanirnar í gærmorgun. Lögregla leitar þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×