Erlent

Sprengjuhótun á kaþólskri hátíð

Frá Lourdes í Frakklandi sem er helgur staður í augum margra kaþólikka. Mynd/AFP
Frá Lourdes í Frakklandi sem er helgur staður í augum margra kaþólikka. Mynd/AFP
Franska lögreglan rýmdi fyrr í dag svæði í kringum fjölfarinn ferðamannastað í bænum Lourdes í Frakklandi í kjölfar sprengjuhótunar. Lögreglu barst tilkynning um að fjórar sprengjur myndu springa klukkan eitt eftir hádegi í grennd við helli í bænum sem er helgur staður í augum margra kaþólikka.

Fjölmennt lið lögreglu tók þátt í að rýma svæðið en um 30 þúsund ferðamenn eru í bænum um þessar mundir vegna árlegrar hátíðar kaþólikka. Engin sprengja hefur fundist en fjölmargir sprengjuleitarmenn er nú á staðnum, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×