Innlent

Handtekinn með hníf á Austurvelli

Boði Logason skrifar
Lögreglumenn handtóku manninn eftir að þeir áttuðu sig á því að hann var með hníf á sér.
Lögreglumenn handtóku manninn eftir að þeir áttuðu sig á því að hann var með hníf á sér. Mynd/Villi
Lögreglan handtók mann á fimmta tímanum í dag. Maðurinn sat á bekk á Austurvelli og neitaði að færa sig og var handtekinn eftir að ljóst var að hann var með hníf innanklæða.

Ástæða þess að hann var beðinn um að færa sig var sú að starfsmenn Reykjavíkurborgar unnu að því í dag að fjarlægja bekki á Austurvelli. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra lögreglunnar var það gert til að koma í veg fyrir að fleiri bekkir yrðu brenndir. Á mótmælunum í gær voru fjölmargir bekkir, sem eru á Austurvelli, brenndir.

Maðurinn er góðkunningi lögreglunnar og sat ásamt félögum sínum á bekknum, þegar þeir voru beðnir um að færa sig. Maðurinn var með hníf á sér og var í kjölfarið handtekinn. Hann var færður í fangageymslu þar sem hann verður látinn sofa úr sér vímuna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×