Innlent

Tæplega tíu þúsund manns mættu á Safnanótt

MYND/GVA

Safnanótt var haldin í nótt og heppnaðist hún með með eindæmum vel að sögn skipuleggjenda. Tæplega 10.000 manns tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá Safnanætur og nutu 150 viðburða á þeim 35 söfnum sem tóku þátt.

„Að þessu sinni spannaði hátíðin allt höfuðborgarsvæðið og dreifðist aðsóknin mjög vel," segir í tilkynningu og greinilegt að íbúar höfuðborgarsvæðisins kunna vel að meta það góða starf sem unnið er í söfnum.

„Margir nutu þess að virða saman fyrir sér ballett með bréfpoka á hausnum, gömul leikföng eða grasrótina í myndlistinni," segir einnig.

Safnanóttin hófst með Kærleikum við Austurvöll og létu fjölmargir gestir ofurlítinn rigningarúða ekki aftra sér. Að kærleikunum loknum setti borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hátíðina. Opnunaratriði Safnanætur var ljósaljóðið „Öndvegissúlur" eftir Texasbúann Bill Fitzgibbons sem spunnin var við magnþrungna hljóðmynd Sverris Guðjónssonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×