Enski boltinn

Klappstýrur West Ham snúa aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessar stelpur mæta líklega aftur á völlinn von bráðar.
Þessar stelpur mæta líklega aftur á völlinn von bráðar.

Það vakti litla lukku meðal stuðningsmanna West Ham þegar Eggert Magnússon ákvað að reka klappstýrur félagsins, The Hammerettes.

Þessar léttklæddu skvísur héldu upp stemningunni fyrir leik sem og í hálfleik. Þær náðu þó greinilega ekki að heilla Eggert með framkomu sinni því hann lét þær fjúka.

Hópur stuðningsmanna West Ham stofnaði þrýstihóp til þess að fá klappstýrurnar aftur á völlinn.

Hinn nýi eigandi West Ham, David Sullivan, er eitthvað víðsýnni en Eggert því hann er sagður ætla að láta undan pressunni og hleypa stelpunum aftur inn á völlinn.

Ekki veitir af einhverju léttmeti á Upton Park því knattspyrnan hjá liðinu er ekki mikið augnakonfekt.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×