Innlent

Á spítti á 180 kílómetra hraða

Ökumaður mældist á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Vogaveg í nótt. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, ók áfram vestur Reykjanesbraut og beygði inn á Grindavíkurveg þar sem hann stöðvaði loks för sína.

Hann er grunaður um akstur undir áhrifum amfetamíns og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem skýrsla og blóðsýni var tekið af ökumanni. Í kjölfarið var hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.

Annar ökumaður var svo stöðvaður síðar um nóttina grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×