Segjast ekki hafa metið svigrúmið 4. febrúar 2010 05:00 Mikið hefur verið rætt um hversu mikið bankarnir geti afskrifað af skuldum landsmanna. Fréttablaðið/vilhelm
Enginn viðskiptabankanna þriggja gefur upp hvaða endurheimtuhlutfall hann miðar við á húsnæðislánum, út frá virði lánasafna sem fengin voru úr gömlu bönkunum, eða hversu mikið svigrúm bankarnir hafi til afskrifta. Þeir segjast ekki hafa metið þetta endanlega, óljóst sé hvort endurheimtuhlutfallið sem miðað er við sé rétt. Samkvæmt útreikningum Marinós G. Njálssonar, tölvunarfræðings og stjórnarmanns í Hagsmunasamtökum heimilanna, úr skýrslu AGS frá nóvember, hafa bankarnir um 44 prósenta svigrúm til afskrifta. Mark Flanagan, sendifulltrúi AGS á Íslandi, mun hafa sagt á fundi með Hagsmunasamtökum heimilanna að AGS vilji að þetta svigrúm sé nýtt að fullu. Blaðið hefur spurt bankana hvert heildarsvigrúm hvers og eins banka sé, og hvort þeir hafni fullyrðingu Flanagans. Það gera þeir ekki beint út. „Bankarnir gerðu ráð fyrir ákveðinni endurheimtu á húsnæðislánasafni við verðmat á yfirteknu lánasafni,“ segir í svari Íslandsbanka. Hluti svigrúmsins sé lagður til hliðar fyrir lán sem tapast að fullu. Því komi ekki í ljós fyrr en á næstu árum hvort endurheimtuhlutfallið sem miðað er við reynist rétt. Afskriftir séu metnar í hverju tilfelli. Bankinn gefi ekki út viðmið um það. Ljóst sé að til töluverðra afskrifta komi. Frá Arion banka heyrist að ekki sé tímabært að meta heildarsvigrúmið. Lánasöfnin hafi verið metin á áætluðu raunvirði, en ekki sé beint samhengi milli matsvirðis lánasafna og þess svigrúms sem bankarnir hafa til að aðstoða skuldara. Hjá Landsbanka er sagt að þörf sé á „verulegu svigrúmi“ til að mæta afskriftum. „Tölur AGS eru á þeirra ábyrgð og erfitt að leggja mat á þær. Ljóst er þó að þetta [44 prósentin] er meðaltalstala sem aldrei verður yfirfærð beint á bankana í heild eða einstaka viðskiptavini,“ segir í svari Landsbanka. - kóþ
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira