Innlent

Segjast ekki hafa metið svigrúmið

Mikið hefur verið rætt um hversu mikið bankarnir geti afskrifað af skuldum landsmanna. Fréttablaðið/vilhelm
Mikið hefur verið rætt um hversu mikið bankarnir geti afskrifað af skuldum landsmanna. Fréttablaðið/vilhelm
Enginn viðskiptabankanna þriggja gefur upp hvaða endurheimtuhlutfall hann miðar við á húsnæðislánum, út frá virði lánasafna sem fengin voru úr gömlu bönkunum, eða hversu mikið svigrúm bankarnir hafi til afskrifta. Þeir segjast ekki hafa metið þetta endanlega, óljóst sé hvort endurheimtuhlutfallið sem miðað er við sé rétt.

Samkvæmt útreikningum Marinós G. Njálssonar, tölvunarfræðings og stjórnarmanns í Hagsmunasamtökum heimilanna, úr skýrslu AGS frá nóvember, hafa bankarnir um 44 prósenta svigrúm til afskrifta. Mark Flanagan, sendifulltrúi AGS á Íslandi, mun hafa sagt á fundi með Hagsmunasamtökum heimilanna að AGS vilji að þetta svigrúm sé nýtt að fullu.

Blaðið hefur spurt bankana hvert heildarsvigrúm hvers og eins banka sé, og hvort þeir hafni fullyrðingu Flanagans. Það gera þeir ekki beint út.

„Bankarnir gerðu ráð fyrir ákveðinni endurheimtu á húsnæðislánasafni við verðmat á yfirteknu lánasafni,“ segir í svari Íslandsbanka. Hluti svigrúmsins sé lagður til hliðar fyrir lán sem tapast að fullu. Því komi ekki í ljós fyrr en á næstu árum hvort endurheimtuhlutfallið sem miðað er við reynist rétt. Afskriftir séu metnar í hverju tilfelli. Bankinn gefi ekki út viðmið um það. Ljóst sé að til töluverðra afskrifta komi.

Frá Arion banka heyrist að ekki sé tímabært að meta heildarsvigrúmið. Lánasöfnin hafi verið metin á áætluðu raunvirði, en ekki sé beint samhengi milli matsvirðis lánasafna og þess svigrúms sem bankarnir hafa til að aðstoða skuldara.

Hjá Landsbanka er sagt að þörf sé á „verulegu svigrúmi“ til að mæta afskriftum. „Tölur AGS eru á þeirra ábyrgð og erfitt að leggja mat á þær. Ljóst er þó að þetta [44 prósentin] er meðaltalstala sem aldrei verður yfirfærð beint á bankana í heild eða einstaka viðskiptavini,“ segir í svari Landsbanka. - kóþ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×