Innlent

Yfir 250 heimili fara á uppboð í október

Ríflega helmingur þess húsnæðis sem fyrirhugað er að selja nauðungarsölu í mánuðinum eru lögheimili fjölskyldna. Yfir 250 heimili fara á uppboð.

Dómsmálaráðuneytið hefur tekið saman hjá sýslumönnum upplýsingar um fjölda húseigna sem til stendur að selja á nauðungaruppboði í október. Þetta eru svonefnd framhaldsuppboð; lokasala.

Í allt eru þetta á fimmta hundrað nauðungarsölur, en rétt er að nefna að þessar tölur geta breyst, því fólk getur samið fram á síðustu stundu.

Enn fremur er þetta ekki allt saman íbúðarhúsnæði, heldur atvinnuhúsnæði, tómar blokkir í eigu verktaka, og svo eru dæmi um að húsnæði sem er í útleigu fari á uppboð; það eru sumsé ekki leigjendurnir sjálfir sem skulda í húsnæðinu.

En til stendur að bjóða upp ríflega 250 íbúðir á landinu öllu í mánuðinum; íbúðir þar sem fólk á eignirnar og á þar lögheimili.

Þetta lítur svona út ef við horfum á landið allt. Á Akureyri til að mynda er fyrirhugað að bjóða upp 8 íbúðir, þar sem eigandinn á heimili; en í heildina er gert ráð fyrir 25 lokasölum. Í Hafnarfirði er talan 22 en heildarfjöldi lokasala er yfir 50. En hlutfallið er langhæst í Reykjanesbæ, umdæmi sýslumannsins í Keflavík. Þar er fyrirhugað að selja 89 eignir lokasölu, en þar af eru 82 íbúðir í eigu venjulegs fólks.

Það sem af er ári, hafa 1.306 eignir verið selda á nauðungaruppboði. En það skekkir myndina að ekki eru upplýsingar um hversu mörg heimili er hér um að ræða. Þarna eru meðtaldir sumarbústaðir, tómar verktakablokkir og jafnvel hesthús.

En að eign sé seld nauðungarsölu, er ekki það sama og að fólk sé borið út. Heimild er fyrir því í lögum að fólk geti búið í húsnæði sínu í 12 mánuði eftir sölu.

Sýslumenn segja dómsmálaráðuneytinu, að þeir hafi ekki orðið varir við að útburðarmálum hafi fjölgað. Enn fremur virðist algengt að fólk búi áfram í húsnæði sem selt hafi verið, með samþykki þess sem hana keypti.

Undanfarin ár voru útburðarmál í Reykjavík flest árið 2004, um 100, en voru innan við 50 í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×