Innlent

Sjómannafélag Íslands: Alþingi ætti að skammast sín

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Sjómannafélag Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna lögbanns á verkfall flugvirkja. Þar mótmælir félagið harðlega því sem þeir kalla aðför að réttindum launafólks sem Alþingi Íslands sýnir launamönnum með lagasetningu, sem bannar verkfall flugvirkja.

Félagið bendir á að samningsstaða verkalýðsfélaga er engin þegar að samninganefndir vinnuveitenda eru með ríkisstjórnina og Alþingi í vasanum veifandi lagasetningum framan í samninganefndir verkalýðsfélaga.

„Alþingi ætti að skammast sín," segir svo í lok yfirlýsingarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×