Innlent

Tækin í TF-SIF

TF-SIF Flugvél Landhelgisgæslunnar er af fullkomnustu gerð. Fréttablaðið/lhg
TF-SIF Flugvél Landhelgisgæslunnar er af fullkomnustu gerð. Fréttablaðið/lhg

TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hefur nýst jarðeðlisfræðingum sem öðrum vel við rannsóknir á gossvæðinu á Eyjafjallajökli.

Landhelgisgæslan fékk vélina, sem er af gerðinni Dash 8 Q 300, á 83 ára afmæli gæslunnar 1. júlí í fyrra. Vélin þykir ein fullkomnasta björgunarvél sinnar tegundar. Um borð er öflug infrarauð myndavél sem getur tekið myndir frá hlið og beint fram hvort heldur er á nótt sem degi. Þá er hún búin öflugum radar, sem meðal annars getur nýst til að greina skip í allt að tvö hundruð sjómílna fjarlægð og tegund þeirra í fjörutíu sjómílna fjarlægð frá vélinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×