Yrsa og Nóbelskáld hjá sama risaforlaginu 9. október 2010 10:12 Yrsa Sigurðardóttir fer sigurför um heiminn.
Bandaríska risaforlagið Macmillan tryggði sér í gær á bókamessunni í Frankfurt útgáfuréttinn á Ösku eftir Yrsu Sigurðardóttur. Á sýningunni náðust einnig samningar við Quetzal Editores um útgáfu á bókinni í Portúgal. Aska kom út í Bretlandi nú í sumar og fékk afar lofsamlega dóma, Yrsa var m.a. sögðu „svar Íslands við Stieg Larsson" í Daily Telegraph. Sagan hefur komið út víða um lönd, meðal annars í Englandi, Þýskalandi, Frakklandi, Grikklandi, Póllandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Tékklandi, að viðbættum öllum hinum spænskumælandi heimi. Önnur glæpasaga Yrsu, Sér grefur gröf, er tilnefnd til bandarísku Shamus-glæpasagnaverðlaunanna en þau eru veitt ár hvert fyrir bækur með einkaspæjurum í aðalhlutverki. Sér grefur gröf er eina þýdda glæpasagan sem tilnefnd er til verðlaunanna í ár en samtök bandarískra glæpasagnahöfunda sem veita þau. Upplýst verður 15. október hver hlýtur þau í ár. Macmillan er ein stærsta bókaútgáfa Bandaríkjanna, gefur meðal annars út perúska nóbelsskáldið Mario Vargas Llosa og Jonathan Franzen, auk Arnaldar Indriðasonar, svo nokkrir séu nefndir. Þess má geta að portúgalska forlagið gefur einnig út Vargas Llosa en hefur líka á að skipa miklum spennusagnahöfundum s.s. Stephen King. Aska kom út árið 2007 og segir frá því að líkamsleifar finnast við uppgröft húss sem fór undir ösku í eldgosinu í Eyjum árið 1973. Á sama tíma deyr kona í Reykjavík með grunsamlegum hætti. Og Þóra Guðmundsdóttir lögmaður glímir við spurninguna: Hvernig tengast þessi voðaverk?
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira