Innlent

Yrsa og Nóbelskáld hjá sama risaforlaginu

Yrsa Sigurðardóttir fer sigurför um heiminn.
Yrsa Sigurðardóttir fer sigurför um heiminn.

Bandaríska risaforlagið Macmillan tryggði sér í gær á bókamessunni í Frankfurt útgáfuréttinn á Ösku eftir Yrsu Sigurðardóttur. Á sýningunni náðust einnig samningar við Quetzal Editores um útgáfu á bókinni í Portúgal.

Aska kom út í Bretlandi nú í sumar og fékk afar lofsamlega dóma, Yrsa var m.a. sögðu „svar Íslands við Stieg Larsson" í Daily Telegraph. Sagan hefur komið út víða um lönd, meðal annars í Englandi, Þýskalandi, Frakklandi, Grikklandi, Póllandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Tékklandi, að viðbættum öllum hinum spænskumælandi heimi.

Önnur glæpasaga Yrsu, Sér grefur gröf, er tilnefnd til bandarísku Shamus-glæpasagnaverðlaunanna en þau eru veitt ár hvert fyrir bækur með einkaspæjurum í aðalhlutverki.

Sér grefur gröf er eina þýdda glæpasagan sem tilnefnd er til verðlaunanna í ár en samtök bandarískra glæpasagnahöfunda sem veita þau. Upplýst verður 15. október hver hlýtur þau í ár.

Macmillan er ein stærsta bókaútgáfa Bandaríkjanna, gefur meðal annars út perúska nóbelsskáldið Mario Vargas Llosa og Jonathan Franzen, auk Arnaldar Indriðasonar, svo nokkrir séu nefndir. Þess má geta að portúgalska forlagið gefur einnig út Vargas Llosa en hefur líka á að skipa miklum spennusagnahöfundum s.s. Stephen King.

Aska kom út árið 2007 og segir frá því að líkamsleifar finnast við uppgröft húss sem fór undir ösku í eldgosinu í Eyjum árið 1973. Á sama tíma deyr kona í Reykjavík með grunsamlegum hætti. Og Þóra Guðmundsdóttir lögmaður glímir við spurninguna: Hvernig tengast þessi voðaverk?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×