Móðir neitaði fyrirtæki að gera markaðsrannsóknir á syni sínum Valur Grettisson skrifar 9. október 2010 10:40 Ung kona vildi fá að ræða við 12 ára dreng oggera markaðsrannsóknir. „
Það var hringt og spurt um leyfi til þess að tala við son minn," segir móðir tólf ára gamals drengs en Capacent-Gallup hafði samband við hana og vildi gera markaðsrannsóknir á drengnum í vikunni. Móðirin, sem vildi ekki koma fram undir nafni, sagði í samtali við Vísi að kurteis ung kona hefði hringt og beðið formlega um leyfi til þess að ræða við son hennar. Konan útskýrði erindi sitt lauslega og sagði tilganginn að spyrja hann nokkurra spurninga vegna markaðsmála. Móðirin gaf konunni ekki leyfi til þess að spyrja drenginn þessara spurninga, sem snérust meðal annars um það hvar hann keypti gallabuxur. „Mér fannst þetta mjög einkennilegt," segir móðirin sem hafði í kjölfarið samband við Capacent-Gallup sem gekkst við rannsókninni. Hún fékk þó ekki að vita hver stóð á bak við könnunina en var lofað frekari svörum um það sem hún hefur ekki fengið. Oddfríður Steindórsdóttir, leikskólastjóri á Hlíðarenda í Hafnarfirði, sagði frá því í vikunni í fréttum Stöðvar 2 að ásælni fyrirtækja í leikskólabörn væri talsverð. Bankar bjóði börnunum í heimsókn, væntanlega með það að markmiði að breyta þeim í neytendur, hliðholla bönkunum, í framtíðinni. Hún sagði ennfremur að leikskólinn afþakkaði mörg boð sem bærust til þeirra. RÚV ákvað á síðasta ári að hætta birtingum auglýsinga í kringum barnaefni sjónvarpsins fyrir klukkan 18:00 á daginn. Sú ákvörðun er alfarið ákvörðun stjórnar RÚV ohf.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira