Innlent

Ákvarðanir teknar um ákærur í lok mánaðarins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, stefnir á að ljúka fyrstu málunum í lok mánaðarins. Mynd/ Daníel.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, stefnir á að ljúka fyrstu málunum í lok mánaðarins. Mynd/ Daníel.
Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari, stefnir á að ljúka rannsóknum á fyrstu málum embættisins fyrir lok þessa mánaðar. Þá verði teknar ákvarðanir um ákærur. Hann segir að málin séu komin misjafnlega langt, en segist ekki geta sagt til um hvaða mál séu komin lengst.

„Við stefnum að því að ljúka einhverjum málum í þessum mánuði en það er með öllum þeim fyrirvörum sem mögulegt er í því," segir Ólafur. Hann segir að það sé nokkuð oft sem það komi fyrir að þegar saksóknarar séu í lokayfirferð máls að þá óski þeir eftir einhverjum viðbótartíma. En miðað við það sem fram eftir sé í rannsókn að þá sé stefnt að því að ljúka þeim í apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×