Innlent

Fær ekki ríkisborgararétt af því konan gengur með blæju

MYND/AP

Frönsk yfirvöld hafa neitað að veita erlendum manni franskan ríkisborgararétt á grundvelli þess að hann neyddi eiginkonu sína til þess að ganga með blæju sem hylur allt andlitið þannig að aðeins sést í augun. Ekki hefur verið gefið upp hvaðan maðurinn er en konan er frönsk.

Í síðustu viku lagði þingnefnd til að andlitsblæjur af þessu tagi yrðu bannaðar á ýmsum opinberum stöðum í landinu. Innanríkisráðherra Frakklands segir að allir sem sækist eftir ríkisborgararétti þurfi að sýna fram á vilja til þess að aðlagast frönsku samfélagi og að það hafi maðurinn ekki gert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×